Hagnaður Landsbankans fyrir skatta nam 17,3 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2006 samanborið við 7,4 milljarða króna á sama tímabili fyrir ári. Hagnaður eftir skatta var 14,3 milljarðar.

Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 63% á ársgrunni.

Grunntekjur samstæðunnar (vaxtamunur og þjónustutekjur) námu 15,8 milljörðum króna og jukust um 8,4 milljarða króna á meðan rekstrargjöld jukust um 4 milljarða króna.

Gengismunur og fjárfestingatekjur námu 11,2 milljörðum króna samanborið við 5,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2005.

Grunnafkoma bankans nam 7,4 milljörðum króna fyrir skatta samanborið við 2,7 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2005. Grunnarðsemi eigin fjár var 30% fyrir skatta.

Í samræmi við aukin umsvif bankans erlendis námu tekjur af erlendri starfsemi 13 milljörðum króna samanborið við 2 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2005. Námu þær 49% af hreinum rekstrartekjum.

Heildareignir bankans námu 1.770 milljörðum króna í lok mars 2006. Að teknu tilliti til veikingar íslensku krónunnar nam raunaukning heildareigna 14%.

Eiginfjárhlutfall (CAD) var 13,0% í lok mars 2006. Eiginfjárþáttur A var 12,4%. Eftir sölu Landsbankans í apríl á 20% hlut í Carnegie er CAD hlutfall bankans 14,6%.