Hagnaður Marels [ MARL ] á fyrsta ársfjórðungi nam 0,7 milljónum evra , sem er í takt við meðalspá greiningardeildanna, samanborið við 1,0 milljón evra hagnað á sama tíma fyrir ári, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Sala fyrsta ársfjórðungs 2008 nam 74,0 milljónum evra samanborið við 72,2 milljónir á sama tíma árið áður. Salan jókst því um 2,5% á milli ára. Á föstu gengi er aukningin 5,3%.

Meðalspá greinigardeildanna hljóðaði upp á 76,8 milljónir evra í tekjur.

Rekstrarhagnaður (EBIT) á tímabilinu janúar til mars 2008 var 2,2 milljónir evra sem er 2,9% af sölu samanborið við 3,2 milljónir (4,5% af sölu) í fyrra.

Eigið fé nam 180,6 milljónum evra og eiginfjárhlutfall var 42,7%.Handbært fé í lok tímabilsins nam 81,4 milljónum evra en var 30,4 milljónir í lok árs 2007.

Breytinguna má einkum rekja til sölu LME á hlutafé í Stork NV sem skilaði Marel Food Systems 53 milljónum evra eftir uppgreiðslu skulda.