MP Banki skilaði 860 milljóna króna hagnaði eftir skatta á árinu 2008, samanborið við 1.780 milljóna króna hagnað á árinu 2007.

Í uppgjörstilkynningu frá bankanum minni hagnaður bankans skýrður með afskriftum kjölfar falls stóru íslensku bankanna og gjaldþrots Lehman Brothers.

Samtals lagði bankinn til hliðar 2.248 milljónir króna vegna afskrifta og telur sig þar með hafa mætt allri afskriftaþörf sem leiddi af bankahruninu, segir í tilkynningunni.

Hagnaðurinn jafngildir 14,7% ávöxtun eigin fjár á ársgrundvelli. Eigið fé nemur 6.624 milljónum króna og er eiginfjárhlutfall bankans (CAD) 22,3%. Meira en helmingur af eignum bankans var í lausu fé, innstæðum hjá Seðlabanka Íslands og í ríkistryggðum skuldabréfum.

MP Banki fékk viðskiptabankaleyfi í lok starfsársins og í árslok námu innlán þriðjungi af fjármögnun bankans en það hlutfall er í dag rúmlega 40%.

Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag:

  • Hagnaður ársins 2008 nam 860 m.kr. sem er 51,7% lækkun samanborið við árið 2007.
  • Hreinar vaxtatekjur hækka um 51,6% milli ára. Námu 1.181 m.kr. á árinu 2008 samanborið við 779 m.kr. árið 2007.
  • Þóknunartekjur dragast saman um 32% á milli ára.
  • Arðsemi eigin fjár (ROE) jafngildir 14,7% ávöxtun á ársgrundvelli árið 2008.
  • Gengishagnaður af fjármálastarfsemi jókst verulega milli ára og nam 1.825 m.kr. í árslok 2008 samanborið við 159 m.kr. í árslok 2007.
  • Hreinar rekstartekjur jukust um 61,9% frá sama tíma í fyrra og námu 3.971 m.kr.
  • Heildareignir bankans haldast stöðugar og í lok desember 2008 eru þær 53.378 m.kr, samanborið við 52.549 m.kr. þann 31. desember 2007.
  • Afskriftareikningur útlána nemur 2.247 m.kr.
  • Laust fé bankans nam 15.524 m.kr. þann 31. desember 2008.
  • Eigið fé var 6.624 m.kr. þann 31. desember 2008 sem er 7,1% hækkun frá 31. desember 2007.
  • Eiginfjárhlutfall (CAD) samstæðunnar var 22,3% í lok árs 2008.
  • Fjöldi starfsmanna var 54 þann 31. desember 2008 samanborið við 52 starfsmenn á sama tíma 2007.

Í uppgjörstilkynningunni kemur fram að rekstur MP Banka hafi gengið vel á árinu, sérstaklega þegar tekið sé mið af mjög erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum um allan heim.

„Vaxtamunur bankans jókst verulega frá fyrra ári sem skýrist að miklu leyti af stöðutöku bankans á skuldabréfamarkaði sem og stór auknum umsvifum í skuldabréfamiðlun,“ segir í tilkynningunni.

„Þóknunartekjur dragast nokkuð saman frá árinu 2007 sem skýrist af minnkandi umsvifum á innlendum og erlendum hlutabréfamarkaði, þó aukningin í þóknunum af skuldabréfamiðlun vegi þar talsvert á móti. Fall íslenska bankakerfisins sem og gjaldþrot Lehman Brothers hafði veruleg áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins og þurfti bankinn að færa í afskriftarreikning verulegar fjárhæðir vegna þessara tveggja atburða. Jafnframt missti bankinn mikið af áhættuvörnum gegn lækkandi eignaverði við fall Lehman Brothers.“

Þá kemur fram að eignastýringu bankans hafi vegnað vel á árinu þar sem góður árangur í stýringu eignasafna viðskiptavina hafi leitt til mikillar aukningar eftirspurnar hjá MP Banka á því sviði.

„Gildir það jafnt fyrir einstaklinga og stofnanafjárfesta,“ segir í tilkynningunni.