Hagnaður MP Fjárfestingarbanka hf. á árinu 2004 var 1.013,5 milljónir króna eftir skatt. Eigið fé bankans um síðustu áramót var 1.919 milljónir króna, en var 1.001 milljónir króna áramótin áður. Hluthöfum voru greiddar 109 milljónir króna í arð á árinu. Hlutafé bankans er 285 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall MP Fjárfestingarbanka hf., reiknað samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 21,1% en má lægst vera 8,0%.

Niðurstöðutala efnhagsreikningsins var 12.262 milljónir króna um síðustu áramót, en var 4.754 milljónir í árslok 2003. Stækkun efnahagsreikningsins má rekja til aukinna útlána til viðskiptavina og aukinnar eignar bankans í ríkistryggðum verðbréfum, samfara viðskiptavakt. Bankinn dró verulega úr eigin áhættu af gengi innlendra hlutabréfa á árinu 2004.

Árið 2004 var fyrsta heila starfsár félagsins sem fjárfestingarbanka, en leyfi til þeirrar starfsemi fékkst þann 15. október 2003. Rekstur bankans gekk afar vel á árinu enda ytri skilyrði á fjármagnsmarkaði hagstæð. Langtímavextir í íslenskum krónum fóru lækkandi, innlent hlutabréfaverð hækkaði mikið og þeir erlendu markaðir sem félagið starfar á reyndust einnig mjög arðbærir.

Bankinn tók að sér að gerast aðalmiðlari ríkisverðbréfa og varð jafnframt viðskiptavaki íbúðabréfa, sem eru veltuhæstu flokkarnir í Kauphöll Íslands. Jafnframt sá bankinn um nokkur stór skuldabréfaútboð fyrirtækja og sveitarfélaga á árinu. Öll svið bankans gengu vel, en aukin áhersla í rekstrinum á skuldabréfaviðskipti og viðskipti erlendis reyndist honum farsæl.

Reksturinn hefur jafnframt gengið vel það sem af er árinu 2005 og eru horfur góðar. Í ljósi afar trausts efnahags er MP Fjárfestingarbanki nú fær um að takast á hendur enn stærri verkefni en á undanförnum árum, bæði innanlands sem erlendis.