Rekstur MP Fjárfestingarbanka skilaði 421 milljón krónu hagnaði á fyrri hluta ársins 2004. Hagnaður bankans nam 511,7 milljónum, en að teknu tilliti til skattgreiðslu að fjárhæð kr. 90,3 milljóna, var hagnaður eftir skatta kr. 421,4 milljónir. Á árinu 2003 var hagnaðurinn 247,7 milljónir króna fyrir skatt.

Eigið fé MP Fjárfestingarbanka þann 30. júní nam kr. 1.321,3 milljónir króna samkvæmt efnahagsreikningi. Greiddur var arður að fjárhæð 109, 2 milljónir króna til hluthafa á tímabilinu. Niðurstöðutala efnahagsreiknings var 8,3 milljarðar króna, en var 4,8 milljarðar í árslok 2003. Eiginfjárhlutfall bankans, sem reiknað er samkvæmt lögum um viðskiptabanka og sparisjóði, er 20%. Þetta hlutfall má lægst vera 8,0%.

Í frétt frá bankanum kemur fram að reksturinn gekk mjög vel á tímabilinu. Umsvif í viðskiptum með skuldabréf voru aukin verulega og gerðist bankinn m.a. aðalmiðlari ríkisverðbréfa og hóf að sölutryggja skuldabréf sveitarfélaga. Stækkun efnahagsreikningsins má að miklu leyti rekja til þessa, en á tímabilinu minnkaði eign bankans í innlendum hlutabréfum verulega. Í júlí gerðist MP Fjárfestingarbanki síðan einn fimm viðskiptavaka með nýja flokka íbúðabréfa sem leystu húsbréfin af hólmi.