Hagnaður Norvik Banka nam 670 milljónum króna eða 7,6 milljónum evra á fyrri árshelmingi að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Hagnaður bankans jókst um 372% miðað við sama tíma í fyrra.  Arðsemi eigin fjár nam 26,66% og CAD-hlutfall bankans var 10,23% á fyrri árshelmingi.

Kostnaðarhlutfall bankans var 59% en tekjur bankans jukust um 72,2%. Þjónustutekjur bankans jæukust um 20,5%. Heildareignir bankans jukust um 48,5% og námu 641 milljón evra. Hagnaður á hlut jókst um 71.4%.