Hagnaður Nýherja eftir skatta á þriðja ársfjórðung 2007 var 93 milljónir en var 154 milljónir á sama tíma í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir, EBITDA, var 184 mkr eða 6,7% samanborið við 197 milljónir eða 10,5% á sama tímabili í fyrra.

Þriðji ársfjórðungur ársins 2007 var tekjuhæsti ársfjórðungur Nýherja frá upphafi en tekjur félagsins voru 2.750 mkr samanborið við 1.910 mkr á sama tíma í fyrra. Hafa tekjur því aukist um 44% frá þriðja ársfjórðungi 2006 og má rekja 32% til innri vaxtar.

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld í þriðja ársfjórðungi voru neikvæð um 58 milljónir króna  en jákvæð um 47 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Eigið fé Nýherja þann 30. september 2007 var 1.642 milljónir en var 1.397 milljónir króna í ársbyrjun.

Fréttatilkynning Nýherja í heild:

Tekjur 7.777 mkr á árinu, jukust um 44% frá þriðja ársfjórðungi í fyrra

? Nýherji semur um kaup á 77% hlut í TM Software hf.
? Heildartekjur 2.750 mkr í ársfjórðungnum, 7.777mkr á árinu.
? Innri vöxtur tekna var 32% á þriðja ársfjórðungi, auk 12% frá nýjum dótturfélögum.
? EBITDA þriðja ársfjórðungs var 184 mkr eða 6,7%.

Rekstur í þriðja ársfjórðungi
Þriðji ársfjórðungur ársins 2007 var tekjuhæsti ársfjórðungur Nýherja frá upphafi en tekjur félagsins voru 2.750 mkr samanborið við 1.910 mkr á sama tíma í fyrra. Hafa tekjur því aukist um 44% frá þriðja ársfjórðungi 2006 og má rekja 32% til innri vaxtar. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir, EBITDA, var 184 mkr eða 6,7% samanborið við 197 mkr eða 10,5% á sama tímabili í fyrra. Hagnaður eftir skatta á þriðja ársfjórðungi nam 93 mkr en var 154 mkr á sama tíma í fyrra. Stöðugildi hjá Nýherja og dótturfélögum eru samtals 464 og hefur þeim fjölgað um 120 frá áramótum. Starfsmenn samstæðunnar erlendis voru 134 í lok ársfjórðungsins.
Fjármagnsgjöld og þróun eigin fjár
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld í þriðja ársfjórðungi voru neikvæð um 58 mkr en jákvæð um 47 mkr á sama tímabili í fyrra. Eigið fé Nýherja þann 30. september 2007 var 1.642 mkr, en var 1.397 mkr. í ársbyrjun.
Afkoma fyrstu níu mánuði ársins
Tekjur fyrstu níu mánuði ársins námu 7.777 mkr samanborið við 5.942 mkr á sama tíma í fyrra og hafa því aukist um 31% á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir, EBITDA, var 485 mkr eða 6,2% samanborið við 509 mkr eða 8,6% á sama tímabili í fyrra. Hagnaður eftir skatta eftir þrjá ársfjórðunga var 302 mkr samanborið við 238 mkr í fyrra.
Fyrstu níu mánuði ársins námu tekjur af vörusölu og tengdri þjónustu 5.522 mkr en voru 3.936 mkr í fyrra. Rekstrarhagnaður af vörusölu og tengdri þjónustu nam 310 mkr samanborið við 197 mkr í fyrra.
Tekjur af hugbúnaði, tengdri þjónustu og ráðgjöf námu 2.363 mkr á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 2.101 mkr á sama tíma í fyrra. Rekstrarhagnaður af þeirri starfsemi var 100 mkr fyrstu níu mánuðina en var 237 mkr eftir níu mánuði í fyrra.

Af rekstri Nýherja
Mikil og stöðug sala hefur verið á netþjónum, diskalausnum og öðrum kjarnavörum Nýherja það sem af er ári auk þess sem mikill vöxtur hefur verið á sviði IP lausna og í hýsingarþjónustu. Þjónustutekjur hafa einnig aukist um 30 prósent frá sama ársfjórðungi í fyrra. Af helstu verkefnum má nefna viðamiklar uppsetningar á IBM búnaði og á margmiðlunarkerfum hjá fjármálafyrirtækjum. Sala á fartölvum og myndbúnaði hefur verið mikil og sýnir góðan vöxt á milli tímabila.

Sense, ný verslun með stafrænar lausnir, var opnuð í byrjun sumars. Henni hefur verið vel tekið af viðskiptavinum og nýjar lausnir sem þar eru boðnar hafa vakið mikla athygli.

Rekstur Tölvusmiðjunnar á Austurlandi, sem Nýherji keypti í október í fyrra, hefur gengið vel á árinu. Ákveðið hefur verið að sameina rekstur Nýherja og Tölvusmiðjunnar fyrir árslok.

Nýherji kaupir í TM Software hf.
Nýherji hf. hefur samið um kaup á 77% hlutafjár í upplýsingatæknifyrirtækinu TM Software hf. af Straumi hf., FL Group hf. og Tryggingamiðstöðinni hf. Kaupin eru háð áreiðanleikakönnun og samþykki samkeppnisyfirvalda. Gert er ráð fyrir að áreiðanleikakönnun verði lokið í byrjun desember.

Markmiðið með kaupunum er að styrkja stöðu Nýherja samstæðunnar á sviði rekstrarþjónustu, hýsingar og þróunar sérhæfðra hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki. TM Software hf. verður rekið sem dótturfélag Nýherja.

Með kaupunum á TM Software hf. fylgja dótturfélögin Skyggnir, Origo, Vigor, eMR og ITP. TM Software hf. er í forystu hérlendis á sviði hýsingar og sértækra hugbúnaðarlausna og eru mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins á meðal viðskiptavina fyrirtækisins. Tekjur TM Software hf. eru áætlaðar um 2.500 mkr á árinu og er fjöldi starfsmanna um 275.

Kaup Nýherja á TM Software er mikilvægur áfangi í að þróa Nýherja samstæðuna sem lausna- og þjónustufyrirtæki og verður yfir helmingur tekna sameinaðs félags af þjónustu-, hugbúnaðar- og ráðgjafarstarfsemi. Ársvelta samstæðunnar eftir kaupin á TM Software hf. er áætluð um 13 milljarðar króna og starfsmannafjöldi um 750.

Dótturfélög
Vaxandi hluti af starfsemi Nýherja samstæðunnar er í dótturfélögum. Í dag eru 54% starfsmanna samstæðunnar starfandi hjá dótturfélögum Nýherja og þar liggur 35% af veltunni. Lagt hefur verið í mikla fjárfestingu í vöruþróun og uppbyggingu nýrra félaga á erlendum mörkuðum og hafa um 89 mkr verið færðar til gjalda á árinu, einkum vegna þróunar ákveðinna hugbúnaðarlausna á vegum AppliCon.

AppliCon
Rekstur AppliCon ehf. og AppliCon A/S í Danmörku var í samræmi við áætlanir félaganna. Í ár eru tíu ár liðin síðan félagið hóf að bjóða SAP viðskiptahugbúnað til fyrirtækja hérlendis. Í dag er AppliCon eitt fremsta SAP ráðgjafarfyrirtæki á Norðurlöndum og í október hlaut AppliCon gullvottun SAP, eitt þriggja fyrirtækja á Norðurlöndum. Gullvottun er efsta stig vottunarkerfis SAP og hlýtur AppliCon viðurkenninguna fyrir framúrskarandi árangur í sölu, þjónustu og þróun á SAP lausnum.

Verkefnastaða AppliCon ehf. og AppliCon A/S í Danmörku er góð. Af nýjum verkefnum hérlendis má nefna að Kópavogsbær hefur keypt SAP mannauðs- og launalausn. AppliCon A/S vinnur að viðamikilli SAP innleiðingu hjá verkfræðifyrirtækinu Birch & Krogboe, auk þess sem áfram er unnið að innleiðingu SAP fjárhagslausna hjá Dong Energy A/S.

Uppbygging á nýjum AppliCon fyrirtækjum í London og Stokkhólmi sem þjóna mörkuðum í Bretlandi og Svíþjóð gengur samkvæmt áætlun.

ParX ehf.
Starfsemi ParX hefur verið kröftug á árinu og verkefnastaða félagsins er góð. Tekjur og afkoma ParX á fyrstu þremur fjórðungum ársins eru yfir markmiðum. Verkefni fyrirtækisins eru fjölbreytt, en viðskiptavinir ParX eru mörg af stærri fyrirtækjum landsins, ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög. Þá hefur félagið í auknum mæli unnið að verkefnum erlendis.

Dansupport A/S
Rekstur Dansupport A/S, sem Nýherji keypti í maí á þessu ári, hefur verið í samræmi við áætlanir. Félagið opnaði nýja skrifstofu í Kaupmannahöfn og hefur starfsmönnum fjölgað um 11 frá í vor og eru þeir nú um 40 talsins. Ráðgert er að fjárfesta í áframhaldandi vexti Dansupport á næstu ársfjórðungum og er gert ráð fyrir að félagið nái eðlilegri arðsemi á síðari hluta næsta árs.

Linkur ehf.
Starfsemi Links hefur gengið samkvæmt áætlun það sem af er ári. Í september gekk Linkur frá kaupum á rekstri Sony Center í Kringlunni. Markmiðið með kaupunum er að styrkja framboð félagsins á sviði mynd- og margmiðlunarlausna.

Horfur
ekjur Nýherja á árinu eru umfram áætlun og afkoma í samræmi við væntingar. Horfur fyrir fjórða ársfjórðung eru góðar og ný tækifæri skapast á næsta ári með kaupum Nýherja á TM Software hf.

Samþykkt stjórnar
Á stjórnarfundi Nýherja hf. 18. október 2007, samþykkti stjórn félagsins árshlutareikning fyrir þriðja ársfjórðung.

Um Nýherja hf.
Hlutverk Nýherja hf. er að skapa viðskiptavinum sínum virðisauka með þekkingu starfsmanna á upplýsingatækni, rekstri fyrirtækja og þörfum viðskiptavina. Nýherji býður fyrsta flokks ráðgjöf og fagþjónustu á sviði upplýsingatækni og vandaðan tölvu-, skrifstofu- og hugbúnað ásamt traustri tækni- og rekstrarþjónustu. Félög Nýherja samstæðunnar eru 14 bæði hér heima og erlendis og eru starfsmenn 464 talsins. Hlutabréf Nýherja hf. eru skráð í OMX Kauphöll Íslands.
Stjórn félagsins skipa Benedikt Jóhannesson, formaður, Árni Vilhjálmsson og Guðmundur Jóh. Jónsson. Forstjóri Nýherja er Þórður Sverrisson og veitir hann nánari upplýsingar í síma 569-7711 eða 893-3630. Heimasíða Nýherja er www.nyherji.is