Nýherji birti í dag fyrsta ársfjórðungsuppgjör sitt. Tekjur félagsins námu 1.909 milljónum króna á tímabilinu og jukust um 34% á milli ára.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir af starfseminni var 158 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2006 eða 8,3% en var 41 milljónir kóna og 2,9% á sama tíma í fyrra.

Hagnaður eftir skatta í fyrsta ársfjórðungi nam 54 milljónum króna samanborið við 26 milljónum á sama tímabili árið áður.

Hagnaður á hlut á árinu nam 0,27 kr. samanborið við 0,11 kr. í fyrsta ársfjórðungi 2005.

Tekjur af vörusölu og tengdri þjónustu námu 1.242 milljónum króna og skilaði sú starfsemi félagsins 68 milljónum króna í rekstrarhagnað.

Tekjur af hugbúnaði, tengdri þjónustu og ráðgjöf námu 667 milljónum króna í fjórðungnum en rekstrarhagnaðurinn af þeirri starfsemi var 64 milljónir króna.

Nýherji keypti þann 21. febrúar eigin bréf, samtals 46.300.000 hluti á genginu 13,8. Eftir kaupin á Nýherji 19,3% af eigin bréfum.