Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur skilaði 8.198 milljón króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 4.769 milljón króna tap á sama tímabili árið áður.

Rekstrartekjur fyrstu sex mánuði ársins námu 10.450 milljónum króna en voru 8.524 milljónir króna á sama tímabili árið áður.

Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta, EBITDA, var 2.535 milljónir króna samanborið við 1.749 milljónir króna á sama tímabili árið áður.

Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 7.500 milljónir króna á tímabilinu, en voru neikvæðir um 9.158 milljónir króna á sama tímabili árið 2006.

Heildareignir þann 30. júní 2007 voru 148.940 milljónir króna en voru 139.977 milljónir króna í árslok 2006.

Eigið fé þann 30. júní 2007 var 76.795 milljónir króna en var 69.359 milljónir króna í árslok árið 2006.

Heildarskuldir félagsins þann 30. júní 2007 voru 72.145 milljónir króna samanborið við 70.618 milljónir króna í árslok 2006.

Eiginfjárhlutfall var 51,6% þann 30. júní 2007 en var 49,6% í árslok 2006.

Með nýjum lögum um skattskyldu orkufyrirtækja varð fyrirtækið skattskylt um tekjuskatt. Lögin koma til framkvæmdar við álagningu tekjuskatts á árinu 2007 vegna tekna á árinu 2006. Sá hluti starfsemi OR er lýtur að rekstri vatnsveitu og fráveitu er þó áfram undanskilinn tekjuskatti.

Langtímaskuldir OR eru að stærstum hluta í erlendri mynt. Gengishagnaður Orkuveitu Reykjavikur af langtímaskuldum nam 7.682 milljónum króna á  tímabilinu. Gengisvísitala í lok júní var 114,0 en var 129,2 í árslok 2006.

Horfur:

Horfur eru góðar um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2007. Umsvif fara vaxandi og fjárfestingar eru miklar. Stærsta einstaka verkefnið er bygging nýrrar virkjunar á Hellisheiði sem mun stórauka eigin orkuvinnslugetu fyrirtækisins, og hefur 1. áfangi hennar þegar verið tekinn í notkun.