Hagnaður Össurar hf.  [ OSSR ] á þriðja ársfjórðungi var 2,2 milljónir Bandaríkjadala eða 133 milljónir króna samanborið við 5,4 milljónir Bandaríkjadala á þriðja fjórðungi 2006. Þetta er heldur betra en meðaltalsspá greiningardeildanna sem spáðu tapi upp á 99 milljónir króna. Munaði þar mestu um að Landsbankinn spáði tapi upp á 445 milljónir króna. Sala Össurar var 82,3 milljónir Bandaríkjadala á þriðja ársfjórðungi og jókst um 31% frá þriðja ársfjórðungi 2006.

Söluaukning vegna innri vaxtar var 11% og pro forma söluaukning var 11%. Hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA) var 14,1 milljón dala, jókst um 16% frá þriðja ársfjórðungi 2006. EBITDA hlutfall var 17,1% samanborið við 19,3% fyrir sama tímabil í fyrra.

Helstu niðurstöður fyrir fyrstu níu mánuði ársins eru þær að sala var 250,7 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 33% frá þriðja ársfjórðungi 2006. Söluaukning vegna innri vaxtar var 8%. Pro forma söluaukning var 8%. Hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA) var 41,7 milljónir dala, jókst um 23% frá sama tímabili 2006. EBITDA hlutfall var 16,6%, samanborið við 18,0% fyrir sama tímabil í fyrra. Hagnaður tímabilsins var 0,9 milljónir Bandaríkjadala samanborið við 8,1 milljón dala hagnað fyrir sama tímabil 2006.

„Við erum ánægð með niðurstöður þriðja ársfjórðungs. Við sjáum áframhaldandi góðan vöxt í Evrópu og fyrstu merki þess að endurskipulagningin sem við gerðum á sölukerfinu fyrir spelkur í Bandaríkjunum í upphafi ársins,sé að byrja að skila sér. Sala Gibaud er á góðu skriði og sýnir góðan vöxt samanborið við síðasta ár, þó svo að með Gibaud hafi árstíðabundin áhrif á sölu aukist vegna sumarlokana í Frakklandi. Sala á stoðtækjum heldur áfram að aukast umtalsvert og að sama skapi sjáum við jákvæða þróun í söluvexti á spelkum og stuðningsvörum. Þegar á heildina er litið erum við sannfærð um að við séum nú að uppskera eftir tímabil innleiðingar og endurskipulagningar sem mun leggja grunninn að framtíðarvexti félagsins," segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar í tilkynningu.