Námufyrirtækið Rio Tinto hagnaðist um rúma 7,4 milljarða Bandaríkjadali á síðasta ári og jókst um 1% frá árinu 2006.

Greiningaraðilar segja að birting uppgjörsins bæti stöðu Rio Tinto verulega en fyrirtækið hefur barist gegn yfirtöku BHP Billiton og hafnaði nýlega kauptilboði þess upp á 147 milljarða Bandaríkjadali.