Hagnaður Sorpu b.s. fyrstu sex mánuði ársins var 64,8 milljónir króna en var 11,3 milljónir króna fyrir sama tímabil og árið áður.

Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 103,5 milljónir króna en var 98,5 milljónir króna fyrir sama tímabil á árinu 2006.

Heildareignir samlagsins 30. júní 2007 námu 1.771 milljónir króna og heildarskuldir 771 milljónir króna, Eigið fé í lok tímabilsins var 1.000 milljónir króna og hafði aukist um rúmar 66,6 milljónir króna frá því í upphafi árs.

Handbært fé frá rekstri var á 100,8 milljónir króna tímabilinu, samanborið við 51,2 milljónir króna á sama tíma fyrir ári.