Hagnaður af rekstri SPRON samstæðunnar eftir skatta var 10.129 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins og jókst um 286% frá sama tímabili árið 2006.

Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 63,8% á ársgrundvelli.

Hreinar rekstrartekjur námu alls 14.974 milljónir króna sem er 192% aukning frá sama tímabili árið 2006.

Vaxtamunur sparisjóðsins er 1,1%.

Niðurstaða efnahagsreiknings var 208.582 milljónir króna í lok júní 2007 og hafa heildareignir hækkað um 13,0% frá áramótum.

Heildarútlán til viðskiptamanna SPRON námu 138.237 milljónum króna í lok júní og hækkuðu um 7,7% frá áramótum.

Heildarinnlán SPRON námu alls 66.635 milljónir króna og hækkuðu um 17,7% frá áramótum. Innlán sem hlutfall af útlánum til viðskiptamanna námu 48% í lok tímabilsins.

Eigið fé í lok júní nam 35.955 milljónum króna.

Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON samstæðunnar í lok tímabilsins var 13,6%. Lágmarkshlutfall samkvæmt lögum
er 8,0%. Eiginfjárþáttur A er 29,0%.

Fjármögnun SPRON hefur gengið vel og á tímabilinu var tekið sambankalán að upphæð 200 milljónir evra.

Stofnfjáreigendur samþykktu, á fundi stofnfjáreigenda þann 21. ágúst sl., tillögu stjórnar SPRON um að breyta sparisjóðnum í hlutafélag. Í framhaldinu hefur verið leitað eftir samþykki Fjármálaeftirlitsins en skv. lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 ber að leita eftir samþykki þess þegar sparisjóði er breytt í hlutafélag.

"Afkoma SPRON er sterk á fyrri hluta ársins," segir Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri "og er hagnaður eftir skatta 10,1 milljarðar króna sem er besta afkoma SPRON á einum árshelmingi frá upphafi. Arðsemi eigin fjár er 63,8% sem er umfram væntingar okkar. Töluverð innlánaaukning var á tímabilinu og jukust innlán um 17,7% á meðan útlán jukust um tæp 8%. Hlutdeildarfélög og fjárfestingar SPRON skiluðu góðri arðsemi á tímabilinu og sjáum við mikinn vöxt í þeim hluta starfseminnar.

Stofnfjáreigendur samþykktu á tímabilinu að breyta SPRON í hlutafélag og hefur verið leitað eftir samþykki Fjármálaeftirlitsins í kjölfarið. Gangi það eftir verður óskað eftir skráningu í kauphöll og er ljóst að SPRON mun skipa sér þar á meðal öflugustu fyrirtækja landsins. Rekstrarhorfur félaga í samstæðu SPRON á árinu eru jákvæðar og allar forsendur til þess að rekstur SPRON haldi áfram að dafna. ?