Hagnaður Fasteignafélagsins Stoða hf. fyrstu sex mánuði ársins 2005 nam 766 millj. kr. en nam 1.071 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður. Hagnaður dregst því saman um 305 kr. Heildareignir félagsins 30. júní 2005 námu 45.224 millj. kr. en námu 45.450 millj. kr. í árslok.

Eigið fé félagsins 30. júní 2005 nam 10.041 millj. kr. en þarf af nam hlutafé 2.160 millj. kr. Eigið fé í árslok 2004 nam 9.452 millj. kr.

Fasteignir félagsins eru verslunarhúsnæði, skrifstofur, hótel og vörugeymslur. Fjöldi leigutaka er á annað hundrað. Meðal stærstu leigutaka má nefna Haga hf., Flugleiðahótel og Fasteignir Ríkissjóðs. Nýtingarhlutfall fasteigna er yfir 97%.