Tekjur Teymis voru yfir meðalspá greiningardeildanna á örðum fjórðungi en hagnaður og EBITDA var undir meðalspá, líkt og sjá má á meðfylgjandi töflu.

„Afkoma félagsins á ársfjórðungnum er að okkar mati viðunandi í ljósi þess ástands sem ríkir í efnahagsumhverfinu,“ segir Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis í tilkynningu.

„Innri vöxtur er mjög góður, EBITDA afkoma góð og sjóðstreymi frá rekstri er sterkt. Gengisfall krónunnar hefur hins vegar leitt til hækkunar á vaxtaberandi skuldum og hlutfallslega minni EBITDA framlegðar en á síðastliðnu ári. Undir lok annars ársfjórðungs ákváðum við að nýta okkur myntbreytingarheimild í lánasamningi okkar sem léttir verulega á vaxtabyrði félagsins. Einnig hefur verið gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða sem þegar eru farnar að skila sér og endurspeglast í afkomu annars ársfjórðungs.“

____________________________

Þetta er leiðrétt útgáfa af fréttinni. Áður var sagt að tekjur og EBITDA hagnaður Teymis hafi verið yfir meðalspá greiningardeildanna en hagnaður var undir meðalspá, líkt og sjá má á meðfylgjandi töflu. Leiðrétting hefur einnig birst sem sér frétt á Vb.is. Beðist er velvirðingar á þessu.