Hagnaður samstæðu VÍS eftir skatta fyrstu sex mánuði ársins 2004 nam 1.358 milljónum króna. Hagnaður af skaðatryggingarekstri nam 776 milljónum króna og hagnaður af líftryggingarekstri 203 milljónum króna þannig að hagnaður af vátryggingarekstri nam samtals 979 milljónum króna. Hagnaður af fjármálarekstri nam 790 milljónum króna.
Heildareignir samstæðunnar 30. júní 2004 námu 30.371 milljón króna og bókfært eigið fé var 6.821 milljón króna.

Samstæða VÍS samanstendur af Vátryggingafélagi Íslands hf, Líftryggingafélagi Íslands hf , Áskaupum ehf, Flutningum ehf og Traustfangi ehf. Það sem einkennir reksturinn á fyrri árshelmingi í samanburði við fyrra ár er töluverð lækkun iðgjalda í skaðatryggingum og betri afkoma af fjármálarekstri. Líftryggingarekstur skilar góðri niðurstöðu, einkum vegna hagnaðar af sölu hlutabréfa. Þá hefur þróun tjóna verið félaginu hagstæð. Ágætur árangur hefur náðst í fjármálaþjónustu VÍS þar sem ávöxtun eignasafns hefur verið góð og umtalsverð aukning hefur verið í bílalánum. Stjórn VÍS samþykkti uppgjörið á fundi sínum í dag.