Hagnaður Volkswagen, stærsta bílaframleiðanda Evrópu, nam 1,31 milljarði evra á fyrsta ársfjórðungi sem er 26% hærra en í fyrra. Gengi hlutabréfa félagsins lækkaði um 1,4% í gær.

Samkvæmt frétt Vegvísis Landsbankans munu næstum öll undirvörumerki fyrirtækisins kynna ný bílamódel á þessu ári og er af þeim sökum búist við metsölu hjá fyrirtækinu á árinu. Volkswagen áformar að kynna 12 ný módel á næstu 3 árum.