Hagnaður þýska bifreiðaframleiðandans Volkswagen meira en tvöfaldaðist á síðasta ári, en það mun vera vegna sérstakra skattaendurgreiðslu og söluhagnaðar vegna sölu á bílaleiguarminum Europcar. Hagnaður fyrirtækisins nam 240 milljörðum króna árið 2006, samanborið við 98 milljarða árinu áður, fyrirtækið hefur einnig hækkað sölu- og afkomuspár fyrir árið 2007.