Á höfuðborgarsvæðinu er mikill fjöldi íbúða sem er ekki í notkun. Þær eru ýmist fullbúnar, fokheldar eða skemur á veg komnar. Áætla má vegna þessa að ekki þurfi að hefja framkvæmdir á nýjum íbúðum fyrr en árið 2011 gefið að gögn Landsbankans um magn ónotaðra íbúða og spá um framboð og eftirspurn eftir íbúðum gangi eftir.

Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræðideildar Landsbankans sem hefur greint fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að svara því hvenær framkvæmdir á nýjum íbúðum muni aukast á ný.

Þar kemur fram að Landsbankinn og VSÓ Ráðgjöf áætla að um 2.300 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu standi ýmist nýjar og ónotaðar eða fokheldar. Búið er að koma upp grunni og botnplötu fyrir um 900 íbúðir til viðbótar. Samtals má því áætla að framkvæmdir séu vel á veg komnar á um 3.200 íbúðum sem að á tiltölulega skömmum tíma mætti taka í notkun.

Þá kemur jafnframt fram að á síðustu 20 árum síðustu aldar voru að meðaltali fullbúnar 1.100 nýjar íbúðir á ári á höfuðborgarsvæðinu og frá 1983 - 2008 voru fullbúnar 1.300 íbúðir á ári á höfuðborgarsvæðinu.

„Að því gefnu að framboð og eftirspurn hafi að meðaltali verið í jafnvægi á tímabilinu má varlega áætla að meðaleftirspurn eftir nýjum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu verði um 1.100 íbúðir á ári,“ segir í skýrslunni.

1.500 íbúðir standa ónotaðar árið 2011

Þá rifjar Hagfræðideildin upp að í þremur spám sem settar voru fram um eftirspurn eftir íbúðum til næstu tveggja ára má sjá að gangi meðalspá eftir þarf ekki að hefja byggingu nýrra íbúða fyrr en árið 2011 og litlu fyrr eða seinna gangi fráviksspár eftir.

Gangi meðalspáin eftir, það er að árleg eftirspurn eftir nýjum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu verði að meðaltali 850 íbúðir, munu 1.500 nýjar íbúðir enn standa ónotaðar um mitt ár 2011. Þá er gert ráð fyrir að ekki verði byrjað á neinum nýjum framkvæmdum, það er einungis að þær íbúðir sem byrjað er á verði kláraðar.

Miðað við að ekki komi til frekari brottflutninga af landinu árið 2011 og undirliggjandi árleg eftirspurn sé 1.100 íbúðir þyrfti að hefja framkvæmdir við nýjar íbúðir árið 2011 til að koma á móts við eftirspurn næsta árs. Gert er ráð fyrir að byggingartími íbúða sé að jafnaði 1,5 ár.

Sjá skýrsluna í heild sinni hér (pdf skjal)