Íslenskt efnahagslíf hefur náð botninum og framundan eru ár hægfara endurbata og vaxtar. Þetta segir í nýrri spá hagdeildar Alþýðusambandsins (ASÍ).

Á síðustu tveimur árum hefur ein króna af hverjum tíu horfið úr verðmætasköpun þjóðarinnar. Hagdeildin segir að verkefni næstu ára verði að stækka þjóðarkökuna til þess að bæta megi hér lífskjör á ný.

Hægfara bati

Hagdeild ASÍ spáir tæplega 4% samdrætti í landsframleiðslu á þessu ári. Á næstu tveimur árum tekur við hægur hagvöxtur og ráðstöðfunartekjur munu aukast lítið og atvinnuástand verður erfitt á næstu árum. „Hægt mun draga úr atvinnuleysi sem gert er ráð fyrir að komið verði niður undir 6% á árinu 2013.“

Spáð er hóflegri verðbólgu, um eða innan við 2% næstu árin. Vextir munu fara lækkandi samkvæmt spánni þó seðlabankinn muni áfram beita aðhaldssamri peningastefnu. Gert er ráð fyrir að gjaldeyrishöftum verði létt í áföngum næstu misserin.

Ekki gert ráð fyrir álveri í Helguvík

„Vegna óvissu um áframhaldandi framkvæmdir við álver í Helguvík er ekki gert ráð fyrir þeim né orkuframkvæmdum þeim tengdum í spá hagdeildar. Takist hins vegar að nýta þau tækifæri sem þar liggja til að skapa ný störf og aukin verðmæti myndi hagvöxtur næsta árs nær tvöfaldast og atvinnulausum fækka um 1.300 manns auk þess sem betri skilyrði sköpuðust fyrir styrkingu krónunnar.“