Árlegur hagspárfundur Landsbankans var haldinn í Hörpu í morgun en þar var farið yfir horfur í þjóðarbúskapnum auk þess sem að spá Hagfræðideildar bankans til ársins 2017 var kynnt.
Fundurinn opnaði með kynningu Daníels Svavarssonar, forsöðumanns Hagfræðideildar Landsbankans, á hagspá bankans en í henni kom m.a. fram að bankinn býst við töluverðri hækkun á fasteignaverði og um 3,5% meðalhagvexti á næstu þremur árum. VB Sjónvarp ræddi við Daníel að loknum fundinum.
Því næst hélt Gunnar Alexander Ólafsson, heilsuhagfræðingur um stöðu og horfur í heilbrigðisþjónustu á Íslandi og Björgvin Skúli Sigurðsson, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar fjallaði um orkuiðnaðinn og möguleika Íslands til framtíðar.
Björgvin Skúli Sigurðsson, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar.
Gunnar Alexander Ólafsson, heilsuhagfræðingur.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor.
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka Atvinnulífsins.
Finnur Sveinbjörnsson.