Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 50,2 milljarða króna og inn fyrir 42,4 milljarða króna..

Vöruskiptin í september voru því hagstæð um 7,8 milljarða króna.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Í september 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 13,8 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu níu mánuðina ársins voru fluttar út vörur fyrir 322,6 milljarða króna en inn fyrir 365,1 milljarð króna.

Þannig var halli var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 42,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 95,6 milljarða á sama gengi.

Vöruskiptajöfnuðurinn var því 53,0 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur

Á vef Hagstofunnar kemur fram að fyrstu níu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 54,1 milljarði eða 20,1% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Iðnaðarvörur voru 51,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 53,1% meira en árið áður.

Sjávarafurðir voru 35,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,2% minna en á sama tíma árið áður.  Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka.

Innflutningur

Þá nam verðmæti vöruinnflutnings fyrstu níu mánuði ársins 1 milljarði eða 0,3% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum og fólksbílum.