Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir október 2008 nam útflutningur 47 milljörðum króna og innflutningur 36,4 milljörðum króna.

Vöruskiptin í október voru því hagstæð um 10,6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Ísland.

Þar er einnig vakin athygli á því að samkvæmt alþjóðlegum stöðlum er verðmæti inn- og útflutnings mælt þegar vörur fara yfir landamæri óháð því hvenær gjaldeyrisskil vegna þeirra  fara fram, en verulegar tafir hafa orðið á þeim í október eins og kunnugt er.

Þá kemur fram að vísbendingar eru um aukið verðmæti útfluttra sjávarafurða og iðnaðarvara en minni útflutning flugvéla og innflutningur flestra liða er minni í október miðað við september 2008.