Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 43,2 milljarða króna og inn fyrir 40,6 milljarða króna. Vöruskiptin í nóvember voru því hagstæð um 2,5 milljarða króna.

Í nóvember 2007 voru vöruskiptin hagstæð um 5,0 milljarða króna á sama gengi.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þar kemur fram að fyrstu ellefu mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 413,1 milljarð króna en inn fyrir 442,0 milljarða króna. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 28,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 111,6 milljarða á sama gengi. Þannig var vöruskiptajöfnuðurinn því 82,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Mesta aukningin í útflutningi á áli

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 26,8 milljörðum eða 6,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 51,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 41,3% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 36,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,9% minna en á sama tíma árið áður.

Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, auk þess sem sölur á skipum og flugvélum til útlanda drógust saman. Fluttir voru út fólksbílar og flutningatæki til atvinnurekstrar fyrir 5,1 milljarð janúar-nóvember 2008.

Samdráttur í innflutningi á flutningatækjum

Fyrstu ellefu mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 55,9 milljörðum eða 11,2% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Mestur varð samdrátturinn í innflutningi á flutningatækjum, aðallega fólksbílum og flugvélum og í innflutningi á fjárfestingavöru og neysluvöru annarri en mat- og drykkjarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og í verðmæti innflutnings á eldsneyti og smurolíum.

Sjá nánar vef Hagstofu.