Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 11,7 ma.kr. á þriðja ársfjórðungi samanborið við 32,1 ma.kr. óhagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 33,5 ma.kr. og 27,3 ma.kr. á þjónustuviðskiptum. Þetta kemur fram á vef Seðlabankans.

Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 47,6 ma.kr. Halla á þáttatekjum má eins og áður rekja til innlánsstofnana í slitameðferð. Reiknuð gjöld vegna þeirra námu 44,4 ma.kr. og tekjur 17 ma.kr. Jöfnuður þáttatekna án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var óhagstæður um 21,6 ma.kr. og viðskiptajöfnuður hagstæður um 39,1 ma.kr.

Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.529 ma.kr. í lok ársfjórðungsins en skuldir 13.671 ma.kr. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 9.142 ma.kr. og lækka nettóskuldir um 361 ma.kr. á milli ársfjórðunga. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.529 ma.kr. og skuldir 3.361 ma.kr. og var hrein staða þá neikvæð um 833 ma.kr.