Hagstofa Íslands hefur gefið út þjóðhagsspá á vori í ritröð sinni, Hagtíðindum . Spáin nær til áranna 2015 til 2019. Í henni er meðal annars gert ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 3,8% á þessu ári og 3,2% árið 2016. Mikill vöxtur fjárfestingar og einkaneyslu drífur hagvöxt fyrstu tvö ár spátímans.

Árið 2015 er spáð að landsframleiðslan aukist um 3,8%, einkaneysla um 3,8% og fjárfesting um 18,1%. Á árinu 2016 er gert ráð fyrir að landsframleiðslan aukist um 3,2%, einkaneysla um 3,3% og fjárfesting um 16,3%.

Hagvöxtur er talinn verða 2,5 - 2,8% árlega frá 2017 til 2019 en á þeim tíma er reiknað með að einkaneysla aukist kringum 3% á ári og að dragi úr vexti fjárfestingar.

Óvissa vegna kjarasamninga

Reiknað er með að verðbólga verði 1,7% árið 2015 en aukist nokkuð á næstunni og hún verði um 3% árið 2016 en lækki í 2,5% í lok spátímans.

„Flestir kjarasamningar eru lausir um þessar mundir og hægt gengur að semja. Breitt bil milli samningsaðila í kjaradeilunni veldur mikilli óvissu um launa og verðlagsþróun á næstunni,“ segir í frétt Hagstofunnar um spána.