Sýn hagnaðist um 172 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi, en til samanburðar nam hagnaður sama fjórðungs í fyrra 8 milljónum króna. Hins vegar nemur tap félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins 176 milljónum króna, samanborið við 402 milljóna króna tap fyrstu níu mánuði síðasta árs. Inni í tapi á fyrstu 9 mánuðum ársins er 179 milljóna króna sölutao vegna sölu á færseyska hlutdeildarfélaginu Hey. Þetta kemur fram í nýbirtu árshlutauppgjöri félagsins .

Tekjur á þriðja ársfjórðungi námu 5.533 milljónum króna en tekjur hækkuðu um 471 milljón króna frá sama tímabili árið 2020. Tekjur á fyrstu níu mánuðum ársins voru 15.822 milljónir króna sem er 2,2% aukning frá sama tímabili árið áður.

EBITDA nam 1.886 milljónum króna á þriðja ársfjórðngi ársins, samanborið við 1.593 milljónir króna á sama fjórðungi í fyrra. EBITDA hlutfallið var 34,1% á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 31,5% á þriðja ársfjórðungi 2020. EBITDA á fyrstu níu mánuðum ársins var 4.762 milljónir króna sem er 10,4% hækkun frá sama tímabili í fyrra.

Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.756 milljónum króna, samanborið við 1.055 milljónir króna á þriðja fjórðungi 2020, sem er hækkun um 66,4%. Handbært fé frá rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins nam 3.730 milljónum króna, samanborið við 3.855 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2020, sem er lækkun um 3,2%. Heildarfjárfestingar á fyrstu níu mánuðum ársins námu 1.687 milljónum króna, en þar af voru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 911 milljónir króna og fjárfesting í sýningarréttum 1.826 milljónir króna. Greiðsla vegna sölu á eignarhluta nam 1.065 milljónum króna og greiðsla vegna kaupa á eignarhluta nam 15 milljónum króna.

Fjármögnunarhreyfingar á fyrstu níu mánuðum ársins voru neikvæðar um 2.439 milljónir króna á móti 1.932 milljónum króna á sama tímabili 2020. Söluandvirði af Hey var notað til að greiða niður langtímatímalán og lækka lánalínur. Eiginfjárhlutfall félagsins var 29,17% í lok þriðja ársfjórðungs 2021.

Í uppgjörstilkynningu Sýnar segir að þann 31. mars síðastliðinn hafi verið skrifað undir samninga um sölu á óvirkum farsímainnviðum félagsins. Enn sé beðið eftir niðurstöðu eftirlitsaðila vegna sölunnar. Söluverði muni verða ráðstafað til lækkunar á lánum, endurkaupa á hlutabréfum og í nýfjárfestingar.

Hefja færsluhirðingu fyrir fyrirtæki

„Við sýnum áfram mikinn bata í rekstri og sá viðsnúningur sem hófst fyrir ári síðan heldur áfram. Þrátt fyrir ýmsar ytri áskoranir, sem flestar eru enn til staðar, þá er rekstur okkar orðinn arðbær og væntingar eru um enn frekari árangur. Það er ánægjulegt að báðar tekjustoðirnar, fjarskipti og fjölmiðlar sýna aukningu tekna á síðasta fjórðungi.

Ég hef áður talað um möguleika fyrirtækisins á að fjölga tekjustoðum. Við erum með um helming allra heimila og fyrirtækja í föstu mánaðarlegu reikningssambandi og viljum útvíkka þjónustuframboð til okkar viðskiptavina. Þetta er í takt við stefnumótun fyrirtækisins sem við kynntum fyrir tveimur árum.

Stærsta fjárfesting okkar síðustu tvö ár hefur verið í upplýsingakerfunum. Nú eru innri kerfin okkar að verða í stakk búin að halda utan um nýjar þjónustur með skilvirkum hætti. Við erum því ánægð að kynna nýja starfsemi en það er færsluhirðing fyrir fyrirtæki. Við sjáum strax að okkar viðskiptavinir taka innkomu nýs aðila inn á markaðinn fagnandi.

Við bíðum enn niðurstöðu eftirlitsaðila vegna sölu á óvirkum farsímainnviðum,“ er haft eftir Heiðari Guðjónssyni, forstjóra Sýnar, í uppgjörstilkynningu.