Landsframleiðsla jókst að raungildi um 1,9% á árinu 2014 og hefur ekki verið hærri að raungildi frá árinu 2008. Innanlandsneyslan dregur hagvöxtinn áfram en þjóðarútgjöld jukust um 5,3%. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Einkaneysla jókst um 3,7%, samneysla um 1,8% og fjárfesting jókst um 13,7%. Útflutningur jókst um 3,1% á sama tíma og innflutningur jókst 9,9% þannig að þrátt fyrir verulegan afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári, eða 128 milljarða króna, dró utanríkisverslun hagvöxtinn niður.

Fara þarf aftur til ársins 2006 til að sjá meiri vöxt í fjárfestingu en á síðasta ári. Hún jókst um 13,7% - þar af var um 15% vöxtur bæði í íbúðafjárfestingu og hjá atvinnuvegunum.

Viðskiptajöfnuður var jákvæður á árinu sem nemur 88 milljörðum króna eða 4,4% af landsframleiðslu. Til samanburðar var hann jákvæður um 125 milljarða árið 2013.

Viðskiptakjör bötnuðu um 1,9% á árinu 2014. Það ásamt jákvæðum viðskiptajöfnuði varð til þess að þjóðartekjur jukust meira en sem nam vexti landsframleiðslu eða um 3,3%. Árið 2013 jukust þjóðartekjur um 11,7%.

Hagvöxtur 3% á fjórða ársfjórðungi

Landsframleiðslan á fjórða ársfjórðungi 2014 jókst um 3% borið saman við sama tímabil ári fyrr.

Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 8,2%. Einkaneysla jókst um 4,5%, samneysla um 2,1% og fjárfesting um 14,2%. Útflutningur dróst saman um 2,9% á sama tíma og innflutningur jókst um 6,7%.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 0,2% milli 3. og 4. ársfjórðungs 2014. Þar af jókst einkaneysla um 1,6% og samneysla um 0,7% en fjárfesting dróst saman um 6,9%.