Leiðandi hagvísir Analytica (e. Composite Leading Indicator) hækkað i um 0,2% í mars og tekur gildið 103,2,. Gildi hagvísisins hefur ekki verið hærra í uppsveiflu síðan 2006. Hagvísirinn bendir til hagvaxtar yfir langtímaleitni.

Sem fyrr skýrist hækkunin einkum af mikilli fjölgun ferðamanna, aukinni kortaveltu heimila og meiri fiskafla. Sterk leitni í fjölda ferðamanna bendir til mikils vaxtar á árinu. Áhættuþættir eru sem fyrr í ytra umhverfi sem ógnað gætu hagvexti, s.s. í alþjóðastjórnmálum, efnahagsmálum nýmarkaðsríkja og Kína og áhrifum á helstu viðskiptalönd.

Hagvísir Analytica er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.

Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup.

Í mars hækka fimm af sex undirþáttum frá fyrra ári. Frá febrúar hækka þrír af sex undirþáttum.