Hagstofan spáir 4,9% hagvexti á árinu, en 3,1% á næsta ári í nýrri þjóðhagsspá sinni. Einnig spáir stofnunin að dragi úr aukningu einkaneyslu og fjárfestinga, sem þeir spá að verði 7,8% og 8,8% í ár en 5,3% og 3,1% árið 2018.Telur hagstofan jafnframt að samneyslan aukist um 2,2% í ár og 1,3% á næsta ári.

Á árunum 2019 til 2023 er gert ráð fyrir því að vöxtur landsframleiðslunnar verði í kringum 2,6%, einkaneysluvöxtur minnki úr 3,6% í 2,5% árið 2023, fjárfesting aukist um 2,1-3,9% og samneyslan um 1,8% á ári.

Fjárfesting eykst hægar á næstunni en undanfarin ár. Spáð er miklum vexti íbúða­fjárfestingar og opinberrar fjárfestingar en samdráttur verður meðal annars í stóriðjutengdri fjárfestingu árið 2018 og síðar. Viðskiptajöfnuður verður áfram jákvæður en versnar heldur þegar líður á spátímann.

Gengi krónunnar styrktist framan af ári en gaf eftir þegar á leið. Tólf mánaða verðbólga er enn lág en búist er við að hún aukist nokkuð þegar áhrifa gengisstyrkingar hættir að gæta. Íbúðaverð hefur hækkað skarpt frá miðju ári 2016 en búist er við að aukið framboð fasteigna á næstu árum dragi úr spennu á íbúðamarkaði.