Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2016 jókst að raungildi um 10,2% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en það er mesta aukning sem mælst hefur frá því á 4. ársfjórðungi 2007. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands .

Þar segir að: „Magnaukning landsframleiðslunnar nú skýrist að verulegu leyti af framlagi utanríkisviðskipta en útflutningur jókst að raungildi um 16,4% samanborið við sama tímabil árið 2015. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst að raungildi um 4,7% frá 2. ársfjórðungi 2016.“

Á fyrstu mánuðum ársins 2016 er hagvöxtur 6,2% borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2015. „Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 9,3%. Einkaneysla jókst um 6,7%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 27,4%. Útflutningur jókst um 10,0% og innflutningur nokkru meira, eða um 16,6%.“