Landsframleiðsla jókst að raungildi um 3,3% í fyrra. Annar eins hagvöxtur hefur ekki mælst síðan árið 2007 en þá var hann 6%. Þá hefur landsframleiðsla ekki verið hærri að raungildi frá árinu 2008. Fram kemur í umfjöllun Hagstofunnar um málið að utanríkisverslun dregur hagvöxtinn áfram því þjóðarútgjöld á árinu 2013 jukust lítillega eða um 0,1%. Til samanburðar mældist 1,5% hagvöxtur árið 2012 og 2,7% hagvöxtur árið 2011.

Fram kemur á vef Hagstofunnar að einkaneysla jókst um 1,2% og samneysla um 1,3% en fjárfesting dróst saman um 3,4%. Útflutningur jókst um 5,3% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 0,1% þannig að verulegur afgangur varð af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári, eða 132 milljarðar króna.

Samdrátt í  fjárfestingu á síðasta ári má að miklu leyti rekja til minni innflutnings skipa og flugvéla sem kemur með beinum hætti fram í fjárfestingu ársins en jafnframt til frádráttar sem innflutningur og hefur því lítil sem engin áhrif á landsframleiðslu ársins. Að frádreginni fjárfestingu í skipum og flugvélum jókst atvinnuvegafjárfesting á síðasta ári um 2,8% og fjárfesting alls um 5,8%.