Hagvöxtur mældist 1,4% á síðasta ári, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Þetta er annað árið í röð sem landsframleiðsla eykst eftir samdrátt í tvö ár á undan.

Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar jukust þjóðarútgjöld í fyrra meira en sem nam vexti landsframleiðslu eða um 1,6%. Einkaneysla jókst um 2,4% og fjárfesting um 5% en samneysla dróst saman um 1,2%. Útflutningur jókst um 3,8% og innflutningur nokkru meira, eða um 4,7%. Þrátt fyrir þessa þróun varð verulegur afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum á síðasta ári eða 104 milljarðar króna.

Þá segir Hagstofan að aukna fjárfestingu í fyrra megi að miklu leyti rekja til innfluttra skipa og flugvéla en slík fjárfesting hafi lítil sem enginn áhrif á landsframleiðslu. Að frádreginni fjárfestingu í skipum og flugvélum dróst fjárfesting á síðasta ári saman um 4,1% og munar þar mestu um minni fjárfestingu í stóriðju- og orkuverum, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.