Ríkiskaup hóf í dag að auglýsa eftir tilboðum í uppbyggingu háhraðatenginga og hafa fyrirtæki frest til júlíloka að skila inn tilboðum. Ástæðan fyrir löngum útboðstíma er m.a. sú að verið er að gefa fjarskiptafyrirtækjum tíma til að meta hvernig best er unnt að koma fyrir tengingum hjá hverju og einu þeirra 1.500 býla sem gert er ráð fyrir að sinnt verði í útboðinu.

Tryggja á íbúum á þessum svæðum háhraðanettengingar og tilheyrandi þjónustu allt til ársins 2014 hið minnsta.

Útboðið er á vegum fjarskiptasjóðs en eitt verkefna hans er að tryggja öllum landsmönnum aðgang að háhraðatengingu. Verkefnið felur í sér stuðning vegna viðbótarkostnaðar við uppbyggingu á háhraðanettengingum á skilgreindum stöðum, sem eru lögheimili með heilsársbúsetu og fyrirtæki með starfsemi allt árið þar sem háhraðanettengingar eru hvorki í boði né fyrirhugaðar á markaðslegum forsendum. Tilboðin verða metin úr frá hraða við uppbygginguna, gagnaflutningshraða auk fjárhæðar.