Meirihluti bjóðenda í háhraðaútboði fjarskiptasjóðs hefur samþykkt að framlengja gildistíma útboðsins. Tilboð voru opnuð 4. september síðastliðinn og bárust sjö tilboð frá fjórum aðilum.

Síminn átti lægsta tilboðið, 379 milljónir króna, en tilboðin voru allt upp í fimm milljarða króna.

Þetta kemur fram á vef samgönguráðuneytisins.

Ríkiskaup fór þess á leit við bjóðendur fyrir hönd fjarskiptasjóðs að þeir framlengdu gildistíma tilboða sinna til 20. janúar næstkomandi.

"Ástæða fyrir beiðninni er það ástand sem nú ríkir í efnahagsmálum," segir á vef ráðuneytisins.

"Vonir standa til þess að samningar megi takast um framkvæmd verkefnisins áður en hinn framlengdi gildistími tilboðanna rennur út. Verkinu mun seinka nokkuð vegna þessarar tafar."