„Það er ljóst að ekki verður grundvöllur til þess að gera út skip á þessar veiðar lengur,“ segir Guðrún Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Stálskipa í Hafnarfirði. Útgerðin þarf að greiða tæpar 50 milljónir króna í veiðigjald eftir 40 daga túr frystitogarans Þórs HF í Barentshafi. Togarinn lagði að bryggju með rúm 1.500 tonn og er áætlað aflaverðmæti hans 208 milljónir króna. Samkvæmt útreikningum sem birtir voru í Fiskifréttum sem fylgdu Viðskiptablaðinu í dag eru aðeins 2,7 milljónir króna eftir af aflaverðmætinu þegar búið er að draga frá hlut sjómanna, veiðigjald, olíukostnað og tryggingagjald.
Guðrún segir í samtali við blaðið veiðigjaldið ekki koma til frádráttar áður en hlutur sjómanna sé reiknaður sem þýði að útgerðin þurfi að greiða veiðigjald af verðmætum sem hún fái aldrei heldur fari beint í ríkiskassann. Hún er jafnframt ósátt við að veiðigjaldið skuli tekið af afla sem veiddur er utan lögsögunnar auk þess sem ekki sé tekið tillit til þess að eyða þarf 10 til 12 dögum í siglingar á miðin.
„Ég efast um að það fólk sem hrópar hæst um svokallað réttlæti hafi hugmynd um hvernig framlegð myndast í sjávarútvegi. Hún hefur kostað miklar fórnir þeirra sem unnið hafa í atvinnugreininni,“ segir hún.
Nánar er fjallað um málið í Fiskifréttum. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum tölublöð.