Lindarvatn ehf., eigandi fasteigna á Landsímareitnum, hefur nýtt undanfarna mánuði til að kanna nánar möguleika á þróun og nýtingu eignanna. Niðurstaða þeirrar vinnu er að halda áfram með áform um hóteluppbyggingu á reitnum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Liður í þessari vinnu hefur verið að ná saman við Alþingi um að falla frá kæru vegna deiliskipulags um reitinn og hefur slíkt samkomulag nú náðst. Mun eigandi eignarinnar því hefja vinnu á næstunni við hönnun, skipulag og útlit á hóteli í góðu samstarfi við Reykjavíkurborg. Þá mun félagið fara í viðræður við mögulega rekstraraðila hótels,“ segir í tilkynningunni.

Auk þess hefur félagið gengið frá samningum við nýjan rekstraraðila skemmtistaðarins Nasa sem hyggst opna í ágúst.