SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu ásamt Rauða krossinum á Íslandi standa fyrir örnámskeiði fyrir flóttafólk á Íslandi um störf í íslenskri verslun og við þjónustustörf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SVÞ.

„Atvinnulífið vill leggja sitt af mörkum til þess að hvetja þennan hóp til þátttöku í íslensku atvinnulífi. Hæsta hlutfall á íslenskum vinnumarkaði vinnur við verslun og þjónustustörf sem jafnframt er oft fyrsti viðkomustaður fólks sem er taka sín fyrstu skref á vinnumarkaði,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu.

Samstarfið hófst í morgun með og þá var farið yfir ferlið frá uppbyggingu ferilskrár og þar til hafin eru störf á vinnustað. Einnig er farið yfir hvernig þessi hópur getur sótt um störf á Íslandi, hvaða tækifæri séu í boði og hvernig íslensk vinnustaðamenning og hvernig þessum hópi gangi almennt.

Eimskip býður í heimsókn

Mannauðsstjóri og ráðgjafi frá Festi og Hagvangi verða með erindi á námskeiðinu auk þess sem fulltrúar SVÞ og Rauða krossins koma með innlegg. Í undirbúningi eru heimsóknir til fyrirtækja og til að mynda hefur Eimskip boðist til að bjóða í heimsókn og kynna vinnustaðinn og fara yfir praktísk atriði.

„Að óbreyttu er líklegra að skortur verði á vinnuafli á Íslandi og að sama skapi tekur tíma að þjálfa og mennta nýtt starfsfólk, ekki síst til að hæfileikar og menntun hvers og eins nýtist. Að auki fáum við nýja þekkingu og fjölbreyttari reynslu inn í landið.“ segir Andrés að lokum.