Á aðalfundi Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins sem haldinn var sl. fimmtudag, 11. maí, var Hálfdan Henrýsson, kjörinn nýr formaður ráðsins. Hálfdan tekur við af Guðmundi Hallvarðssyni sem átt hefur sæti í stjórn ráðsins í 33 ár, þar af tæpan aldarfjórðung sem formaður. Guðmundur gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Hálfdan þekkir vel til starfa Sjómannadagsráðs en hann settist í stjórn þess árið 1993, fyrir bráðum aldarfjórðungi að því er segir í fréttatilkynningunni. Á þeim tíma hefur hann gegnt stöðu ritara, gjaldkera og  embætti varaformanns. Á aðalfundinum voru Guðmundi þökkuð góð störf í þágu Sjómannadagsráðs og óskað allra heilla í framtíðinni.

„Guðmundur hefur haft mikil áhrif á starfsemi Sjómannadagsráðs á löngum og farsælum ferli sínum í stjórn ráðsins, ekki síst þau ár sem hann hefur gegnt formannsstarfi,“ segir nýkjörinn formaður ráðsins.

„Sjómannadagsráð hefur þróast mikið á þessum árum og starfsemin vaxið að öllu umfangi. Í raun má segja að starfsemi Sjómannadagsráðs í heild sé ekki minni í sniðum en hjá meðalstóru fyrirtæki í atvinnulífi landsmanna enda starfa á vegum þess ríflega 900 hundruð manns hjá dótturfélögum þess, aðallega á Hrafnistuheimilunum sex á höfuðborgarsvæðinu, en Hrafnista er stærsti veitandi öldrunarþjónustu á Íslandi.“

Síðasta embættisverk fráfarandi formanns var undirritun samninga og viljayfirlýsingar við Reykjavíkurborg um byggingu og rekstur nýs hjúkrunarheimilis, þjónustumiðstöðvar og leiguíbúða fyrir aldraða við Sléttuveg í Fossvogsdal.

Á hjúkrunarheimilinu verður fyrirkomulag svipað því sem er í dag á Hrafnistu-heimilunum. Byggingarframkvæmdir hefjast síðar á þessu ári og kemur það því í hlut nýkjörins formanns að fylgja verkefninu eftir, enda gert ráð fyrir að hjúkrunarheimilið taki til starfa 2019.

Í beinu framhaldi hefjast framkvæmdir við þjónustumiðstöðina, sem Sjómannadagsráð mun byggja, eiga og reka, auk þriggja fjölbýlishúsa með um 125 leiguíbúðum í eigu Naustavarar, dótturfyrirtækis Sjómannadagsráðs.