Fannar Jónasson
Fannar Jónasson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Rekstrarniðurstaða Grindavíkurbæjar var jákvæð um 496 milljónir króna árið 2019 samkvæmt ársreikningi sveitarfélagsins en það er um 6,4 milljónum minna en árið 2018.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu 3.642 milljónum króna samkvæmt ársreikningi A- og B-hluta. Rekstrartekjur A-hluta námu 3.312 milljónum króna á meðan rekstrarniðurstaða A-hluta nam 443,8 milljónum króna.

Eigið fé Grindarvíkurbæjar nam um 8,9 milljarða króna í árslok 2019 sem er um 7,4% hækkun frá fyrra ári. Skuldir sveitarfélagsins hækkuðu um tæpar þrjár milljónir króna milli ára og standa nú í 1,75 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall þess er því um 83,6%.

„Það er gleðiefni að fjárhagsstaða bæjarins skuli vera jafn sterk og raun ber vitni.  Samkvæmt fjárhagsáætlun var gert  ráð fyrir 314 milljónum í rekstrarafgang, en niðurstaðan varð umtalsvert betri. Á sama tíma skuldar bæjarfélagið engin vaxtaberandi lán og handbært fé okkar hækkaði um 63,7 milljónir á milli ára,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar.

„Góður rekstrarafgangur og sterk eiginfjárstaða er grundvöllur þess að hægt sé að ráðast í viðamiklar framkvæmdir og það á svo sannarlega við hér í Grindavík.“

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkti reikninginn samhljóða á fundi í lok apríl og var honum vísað til síðari umræðu bæjarstjórnar í kjölfarið.

Fjárhagslegur styrkur kostur í Covid

Veruleg óvissa ríkir um efnahagsleg áhrif COVID-19 faraldursins segir í ársreikningnum og á sveitarfélagið von á því að tekjur þess verði lægri árið 2020. Vænta má að áhrif á rekstur sveitarfélagsins verði umtalsverð meðal annars vegna lægri skatttekna og annarra tekna, frestun gjalddaga og aukinna útgjalda.

„Að okkur hafi tekist að fara fjárhagslega sterk inn í þetta ár er auðvitað kostur. Íbúar okkar verða samt alltaf í fyrsta sæti og munum við gera okkar besta til að mæta þörfum þeirra,“ segir Fannar.

„Grindavíkurbær hefur skapað um 50 ný störf í sumar og flestir í þeim hópi eru nemendur í framhaldsskólum eða háskólum. Auk þess verða í vinnuskólanum um 140 nemendur og að viðbættum verkstjórum og flokksstjórum verða hjá okkur meira en 200 sumarstarfsmenn sem er mikil aukning frá fyrri árum.“