Nú standa yfir kosningar í stjórn Viðskiptaráðs Íslands en samtals eru kjörnir 19 í stjórn VÍ og jafnmargir í varastjórn. 71 hefur gefið kost á sér en allir skuldlausir félagsmenn geta kosið. Einungis tveir sem sitja í stjórn VÍ gefa ekki kost sér áfram en það eru þau Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, og Halla Tómasdóttir, sem vék sæti sem stjórnarformaður Auðar Capital undir lok síðasta árs.