© Aðsend mynd (AÐSEND)

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað Höllu Sigrúnu Hjartardóttur formann stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME). Hún tekur við formennskunni af Aðalsteini Leifssyni.

Fram kemur í tilkynningu að Halla starfaði sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Straums fjárfestingabanka á árunum 2011-2013. Frá 2002 til 2011 vann hún hjá Íslandsbanka, síðast sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar. Hún lauk BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og prófi í verðbréfamiðlun frá sama skóla.

Þá segir í tilkynningunni að samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi fer þriggja manna stjórn, skipuð af fjármála- og efnahagsráðherra til fjögurra ára í senn, með yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins. Hlutverk stjórnar er að móta áherslur í starfi og fylgjast með starfsemi og rekstri Fjármálaeftirlitsins. Meiri háttar ákvarðanir skal bera undir stjórnina til samþykktar eða synjunar.

Auk formanns eiga eftirtaldir aðal- og varamenn sæti í stjórn FME:

  • Arnór Sighvatsson, aðstoðarbankastjóri, samkvæmt tilnefningu Seðlabanka Íslands
  • Margrét Einarsdóttir, lektor, aðalmaður
  • Halldór S. Magnússon, viðskiptafræðingur, varamaður
  • Ástríður Jóhannesdóttir, deildarstjóri, varamaður
  • Harpa Jónsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri í Seðlabanka Íslands, varamaður