Halla Tómasdóttir, frumkvöðull og fjárfestir, tilkynnti á blaðamannafundi að hún ætlaði að bjóða sig fram til forseta Íslands.

Áskorunarsíðu var ýtt úr vör þann 1. desember síðastliðinn en við það tækifæri sagði Halla að hún ætlaði að taka sér tíma til að hugsa málið. Um það bil 1.600 manns hafa lýst yfir stuðningi við síðuna.