Halldór Benjamín Þorbergsson hefur ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins til að taka við stöðu forstjóra fasteignafélagsins Regins.

„Það eru óneitanlega blendnar tilfinningar sem fylgja því að kveðja þennan vettvang, enda eru alger forréttindi að gegna starfi framkvæmdastjóra SA. Starfið hjá SA hefur verið mjög lærdómsríkt og skemmtilegt en það er á sama tíma engum hollt að vera í slíku starfi of lengi,“ segir Halldór Benjamín.

„Ég veit að ég skil við starf samtakanna í góðum höndum, hjá öflugum hópi starfsfólks og stjórnarmanna, sem ég hef verið svo lánsamur að eiga gott samstarf við á þeim tæpu 7 árum sem ég hef gegnt þessu starfi.“

Halldór Benjamín var ráðinn framkvæmdastjóri SA í árslok 2016. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Icelandair Group á árunum 2010-2017. Þá starfaði hann um tíma sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Halldór er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og er með MBA-gráðu frá Oxford-háskóla.

Tekur við af Helga í sumar

Halldór Benjamín mun hefja störf sem forstjóri Regins fyrri hluta sumars 2023, að því er segir í tilkynningu fasteignafélagsins til Kauphallarinnar.

Helgi S. Gunnarsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Regins frá stofnun félagsins árið 2009, lætur af störfum á sama tíma en mun verða nýjum forstjóra innan handar fyrst um sinn.

„Stjórn Regins er afar stolt af því að hafa fengið til liðs við félagið öflugan leiðtoga til að leiða áframhaldandi uppbyggingu Regins. Halldór Benjamín hefur í störfum sínum sýnt mikla forystuhæfileika og getu til að leiða vandasöm verkefni til lykta. Hann hefur yfirburðaþekkingu og tengsl í íslensku atvinnulífi sem munu reynast bæði félaginu og viðskiptavinum þess vel. Stjórnin hefur miklar væntingar til Halldórs Benjamíns til að leiða félagið áfram til vaxtar í samræmi við framtíðarsýn þess,“ segir Tómas Kristjánsson, stjórnarformaður Regins.