Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur skipað Halldór Björnsson, settan héraðsdómara við héraðsdóm Reykjavíkur, í embætti héraðsdómara við héraðsdóm Austurlands frá og með 1. september 2008.

Þá hefur ráðherra sett Önnu Mjöll Karlsdóttur, lögfræðing, og Ragnheiði Harðardóttur, vararíkissaksóknara, í embætti héraðsdómara við héraðsdóm Reykjavíkur. Önnu til og með 15. apríl 2010 og Ragnheiði tili og með 31. ágúst 2010, á meðan á leyfi skipaðra dómara stendur.