Guðmundur Jóhann Jónsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur ákveðið að láta af störfum þann 30. september nk. eftir 22ja ára starf fyrir fyrirtækið. Halldór Gunnar Eyjólfsson, núverandi framkvæmdastjóri tjónasviðs, mun taka við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs.

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. er dótturfélag Íslandsbanka hf.