Halldór Harðarson er nýr markaðsstjóri Arion banka. Undanfarin tvö ár hefur Halldór starfað sem framkvæmdastjóri markaðssviðs N1. Halldór starfað áður sem forstöðumaður markaðsdeildar Símans á árunum 2010 til 2013, framkvæmdastjóri markaðs- og framleiðsludeildar Latabæjar 2008 til 2009 og forstöðumaður markaðsdeildar Icelandair 2005 til 2008.

Halldór hefur lokið B.Sc. gráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka.