Halldór Harðarsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður markaðssviðs Icelandair með aðsetur á Íslandi. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að hann mun hafa umsjón með öllu markaðsstarfi Icelandair á öllum sölusvæðum félagsins með áherslu á vörumerkjaþróun, markaðsrannsóknir, viðburði og netþróun.

Halldór er 32 ára viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað hjá Icelandair frá 1997, fyrst í London og frá árinu 2000 sem markaðsstjóri Icelandair á Norðurlöndum. Halldór er kvæntur Kristínu Johansen og þau eiga dótturina Nínu.