Halldór Þorkelsson lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Capacent á Íslandi. Hann tekur við starfinu nú um áramótin af Ingva Þór Elliðasyni, sem lætur af störfum að eigin ósk. Þetta segir í tilkynningu frá Capacent.

Halldór Þorkelsson er fæddur árið 1971 og lauk Halldór lögfræði við Háskóla Íslands árið 1999 og hóf hann þá störf hjá fjármálaráðuneytinu, en þar starfaði hann á tekju- og lagasviði. Halldór sinnti þar mörgum verkefnum til að mynda samskipti ráðuneytisins við ríkislögmann vegna málatilbúnaðar sem beindist að íslenska ríkinu og vann hann einnig við frumvarpsgerð.

Halldór starfaði einnig fyrir PricewaterhouseCoopers frá árinu 2001 og hefur starfað þar síðan. Frá árinu 2004 hefur Halldór veitt ráðgjafasviði félagsins forstöðu og auk þess hefur hann verið partner hjá PwC frá árinu 2005. Halldór er giftur Hildi Dungal, lögfræðingi og eiga þau saman þrjú börn.

Ingvi Þór, sem hættir nú sem framkvæmdastjóri hefur starfað sem slíkur frá árinu 2008 og mun hann nú eftir áramót snúa sér að ráðgjafaverkefnum af fullum krafti.

Haft er eftir Þresti Sigurðssyni, stjórnarformanni Capacent, að það sé mikill fengur fyrir fyrirtækið að fá Halldór til liðs við Capacent. „Við erum sannfærð að ráðning hans muni ekki síst efla Capacent í fjármálatengdri ráðgjöf, sem að við höfum verið að byggja upp á síðustu árum, m.a. með greiningardeild sem að verðmetur öll skráð hlutafélög auk skuldabréfa. Markmið okkar hjá Capacent á næstu árum er að halda áfram að styrkja félagið með vexti og ráðning Halldórs er mikilvægur liður í því,“ segir Þröstur.

Halldór Þorkelsson segir: „Ég er fullur tilhlökkunar yfir því að ganga til liðs við Capacent og starfa þar með stórum og öflugum hópi ráðgjafa á fjölbreyttum sviðum, allt frá stefnumótun og fjármálatengdri ráðgjöf að ráðningum auk fjölbreyttra hugbúnaðarlausna, ekki síst á sviði stjórnendaupplýsinga. Ég hef fylgst lengi með fyrirtækinu og hefur sú þróun og framsækni sem einkennir starfsemina vakið athygli mína og ég hlakka til að fá að taka þátt í þeirri þróunarvinnu og þeim vexti sem í vændum er. Það eru mjög spennandi tímar fram undan hjá Capacent sem miða að því að efla félagið enn frekar.“