Halldór Kr Jónsson hefur verið ráðinn sölu- og verkefnastjóri fyrir Centara á Íslandi. Hugbúnaður hf. framleiðir verslunar- og veitingahúsakerfið Centara sem er markaðssett á alþjóðlegum markaði.

Í tilkynningu segir að Wise lausnir ehf. stýri allri sölu og þjónustu á Íslandi og að Halldór muni vinna náið með Wise og Hugbúnaði í allri sölu og markaðsetningu.

Halldór er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og Tölvunarfræði frá Háskólanum á Akureyri. Halldór hefur meðal annars starfað hjá Streng hf, Landsteinum Streng og Skýrr.